The Lovely Bones er byggð á samnefndri metsölubók eftir Alice Sebold.
Myndin fjallar um hina 14 ára gömlu Susie (Saoirse Ronan) sem býr í úthverfum Pennsylvaníu og er myrt af nágranna sínum, George Harvey (Stanley Tucci). Hún vakir yfir fjölskyldu sinni, og morðingja, frá himnaríki og fylgist þar með fjölskyldu sinni og hvernig hún breytist á meðan þau reyna að fá einhvern til að finna lík hennar. Unga stúlkan þarf að ákveða hvort vegur meira, hefndin eða að ástvinir hennar komist yfir fráfall hennar. Myndinni leikstýrir Peter Jackson (The Lord of the Rings, King Kong).