Prinsinum Naveen (Bruno Campos) er breytt í frosk af illum galdramanni, Dr. Facilier (Keith David). Froskaprinsinn gerir þau mistök að halda að stúlka að nafni Tiana (Anika Noni Rose) sé prinsessa, sem hann þarf síðan að kyssa til að breytast aftur í eðlilegan mann. Eftir að sannfæra hana um að kyssa sig kemst hann að því að ekkert hefur breyst, nema nú hefur honum tekist að breyta henni líka í frosk. Nú þurfa þau bæði að finna leið til að losna úr álögunum áður það verður um seinan, en í millitíðinni lenda þau bæði í ýmsum ævintýrum og kynnast meðal annars krókódíl sem kann að spila á trompet og óvenju rómantískri eldflugu. Myndin verður bæði sýnd með íslensku og ensku tali.