Ofurstrákurinn er byggð á samnefndri teiknimyndaseríu frá Japan sem fjallar um lítið vélmenni með ofurkrafta sem gerist hetja borgarinnar Metro City.
Vísindamaður nokkur missti nýlega son sinn og ákvað að búa til vélmennið í laumi og móta hann eftir ímynd sonarins. Fullt af frægum leikurum tala inn á ensku útgáfu myndarinnar. Um er að ræða hraðskreiða, litríka og stórskemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.