Planet 51 segir frá geimfaranum Chuck (Dwayne Johnson), sem lendir á undarlegri geimveruplánetu. Gallinn er hins vegar sá, að í augum íbúanna er Chuck geimveran. Allt verður vitlaust eftir að þetta fréttist út og fljótlega breytist áætlun Chucks úr því að kanna þessar nýju slóðir í að snúa aftur heim til Jarðar, og þá helst í heilu lagi.