Þú ert hér ››Sambio.is / Myndir í bíó
Leturstærð:AAA

Beth Harper (Kristen Bell) gengur vel í starfi sínu á listafninu Guggenheim og stendur á þeim tímapunkti þar sem ást virðist vera munaður sem hún hefur ekki efni á. Hún hefur eytt árum í að bíða eftir hinum fullkomna ástarævintýri og er orðin bitur. Dag einn fer hún til Rómar til að vera viðstödd fljótfærnislegt brúðkaup yngri systur sinnar. Meðan á dvöl hennar stendur stelur hún smápeningum úr hinum fræga "ástarbrunni" og næstum samstundis er hún elt á röndum af biðlum, mönnum sem hentu smápeningunum sem hún tók í brunninn. Biðlarnir eru hinir ólíklegustu, smávaxinn pylsumógúll (Danny DeVito), renglulegur götugaldramaður (Jon Heder), draumórakenndur málari (Will Arnett) og sjálfsdýrkandi karlmódel (Dax Shepard). Á meðan að á þessu stendur er fréttamaður (Josh Duhamel) sem er gagntekinn af Beth að reyna að telja henni trú um að sönn ást sé ekki einungis til í ævintýrum og ástarsögum.

Frumsýning 26.3.2010
Leikstjórn Mark Steven Johnson,
Handritshöfundar David Weissman, David Diamond,
Leikarar Will Arnett, Josh Duhamel, Kristen Bell, Anjelica Huston, Jon Heder, Dax Shepard,
Tegund myndar Rómantík /
Lengd myndar 100 min
Aldurstakmark
  • Kvikmyndahús
  • Sýningatímar
  • Íslenskt tal
  • VIP
  • Ísl VIP