Myndin gerist í ítalska bænum Baaría og er sagan sögð frá sjónarhorni pars frá þriðja áratug síðustu aldar til hins níunda og fjallar um þrjár kynslóðir. Við fylgjumst með elskhugunum Peppino (Francesco Scianna) og Manninu (Margareth Madè) og hvernig þau ganga í gegnum súrt og sætt.
Myndin hefur fengið afbragðsdóma gagnrýnenda og hefur vakið mikla athygli í heimalandi sínu.