Breskum rithöfundi (Ewan McGregor) sem vegnar vel er falið það verkefni að ljúka við æviminningar fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Adam Lang (Pierce Brosnan). Lang hefur sagt skilið við pólitíkina og flutt til Ameríku og býr þar á öruggari eyju við vellistingar ásamt konu sinni Ruth og persónulegum aðstoðarmanni sínum (Kim Cattrall), sem er jafnframt hjásvæfa hans. Daginn sem rithöfundurinn kemur til eyjunnar ásakar fyrrum ráðuneytismeðlimur Lang hann um stríðsglæp. Hann segir Lang hafa veitt heimild til ólöglegra handtaka á grunuðum hryðjuverkamönnum og að hafa framselt þá yfir til CIA til að vera pyntaðir. Deilan leiðir fjöldan allan af fréttamönnum og mótmælendum til eyjarinnar. Rithöfundurinn fæst við að tjasla saman handritinu og finnur vísbendingar um að fyrirrennari hans hafi fundið upplýsingar sem tengja Lang við CIA og hafi falið þær í gríðarmiklu uppkastinu sem hann skildi eftir. Tvær grímur renna á rithöfundinn þegar hann kemst að því að fyrirrennarinn hafi látist í slysi. Myndinni leikstýrir Roman Polanski og með önnur hlutverk fara Timothi Hutton, Olivia Williams, Kim Cattrall og James Belushi.