Endurgerð klassískrar hryllingsmyndar frá 1941 með sama nafni. Í lok 19. aldar snýr Lawrence Talbot (Benicio del Toro) aftur til æskuheimilisins eftir að bróðir hans hverfur á dularfullan hátt. Lawrence sem hefur eytt mörgum árum í að gleyma skelfilegri barnæsku sinni og drungalegu þorpinu sem hann kom frá, þarf nú að horfast í augu við föður sinn (Anthony Hopkins) og hræðileg örlög sín. Á meðan er hver þorpsbúinn á fætur öðrum myrtur og fulltrúi Scotland Yard fer að spyrja óþægilegra spurninga.