Söngleikur byggður á hálf-sjálfsævisögulegri mynd eftir Federico Fellini. Daniel Day-Lewis leikur Guido Contini, heimsfrægan kvikmyndaleikstjóra sem horfist í augu við miðaldurs-kreppuna ógurlegu. Bæði einkalíf hans og listrænir hæfileikar líða fyrir persónulegar flækjur hans og hann verður að gera upp málin við konurnar í lífi sínu, sem eru nokkuð margar. Þær telja eiginkonu, hjákonu, listagyðju, trúnaðarvin og búningahönnuð, tískublaðakonu, vændiskonu frá unglingsárunum og sjálfa móður hans.