Þú ert hér ››Sambio.is / Myndir í bíó
Leturstærð:AAA

Christpher Nolan (Memento, Batman Begins, The Dark Knight, The Prestige) færir okkur nýjustu mynd sína sem fjallar um Dom Cobb (Leonardo DiCaprio (Titanic)), einn hæfasta þjóf heims í sínu fagi. Og hvert er fagið? Að stela leyndarmálum innan úr undirmeðvitund fólks meðan það sefur, þegar hugurinn er hvað viðkvæmastur. Sjaldgæfur hæfileiki Cobb hefur gert hann að veigamiklum leikmanni í hinum svikula, og jafnframt nýja heimi iðnaðar njósna. En hæfileikinn hefur einnig gert Cobb að alþjóðlegum flóttamanni og kostað hann allt sem hann hefur nokkurntíma elskað. Nú hlýst Cobb tækifæri til að endurheimta gamla lífið sitt. Eitt lokaverkefni gæti gefið honum allt, það eina sem hann þarf að gera er að gera hið ómögulega. Í staðinn fyrir að stela upplýsingum þá á Cobb og teymi hans að gera einmitt andstæðuna. Verkefni þeirra er ekki að stela hugmynd heldur að koma einni fyrir. Ef þeim tekst það er það hinn fullkomni glæpur. En sama hversu hæfir þeir eru eða hversu mikið þeir undirbúa sig þá getur Cobb og teymið hans ekki búist við hættulegum óvini sem virðist sjá fyrir allar þeirra aðgerðir. Andstæðingur sem aðeins Cobb gæti hafa búist við. Þetta sumar verður hugur þinn vettvangur glæpsins. Með önnur hlutverk fara Michael Caine, Joseph Gordon-Levitt og Ellen Page svo einhverjir séu nefndir.

Frumsýning 21.7.2010
Leikstjórn Christopher Nolan,
Handritshöfundar Christopher Nolan,
Leikarar Leonardo DiCaprio, Marion Cotillard, Ken Watanabe, Joseph Gordon-Levitt, Ellen Page, Tom Hardy,
Tegund myndar Spenna /
Lengd myndar 148 min
Aldurstakmark
  • Kvikmyndahús
  • Sýningatímar
  • Íslenskt tal
  • VIP
  • Ísl VIP