Sophie Hall (Amanda Seyfried) vinnur hjá tímaritinu The New Yorker við að sanna staðreyndir í greinum, en hana dreymir um að verða einn af pennum blaðsins. Þegar hún fer í rómantíska ferð til Ítalíu með unnustanum Victor kemst hún að því að hann er uppteknari af vinum og ostum heldur en henni, sem leiðir til þess að hún fer í skoðunarferð til hússins sem hin upphaflega Juliet Capulet úr sögunni um Rómeó og Júlíu átti að hafa búið í. Þar skilur fjöldi fólks eftir ástarbréf sem eru hirt af konum sem sjá um að svara tilbaka. Þegar Sophie finnur eitt bréfið ákveður hún að skrifa tilbaka sjálf en það mun hafa afleiðingar sem henni hefði aldrei dottið í hug.